Sunday, December 18, 2005
Jæja kannski komin tími til að blogga aðeins.
EIns og lesendum er kannski kunnugt fórum við til Ljubljana um mánamótin síðustu. Það var æðisleg ferð, landið alveg meiriháttar og þar er líka frábært að versla, enda var verslað af sér allt vit. Maturinn er bæði mjög góður þarna úti sem og mjög ódýr enda var farið út að borða öll kvöld nema laugardagskvöldið en þá var árshátíðin sjálf. Hún var haldin á hótelinu sem liðið gisti á sem var mjög þægilegt. Maturinn var hreint dýrlegur, 4 rétta og allt gekk rosalega vel fyrir sig. Þu+rftum aldrei að bíða lengi eftir næsta rétt og svo var nú passað upp á að aldrei væri tómt í glösunum. Slovenar stóðu sig sem sagt með stakri príði. Hvað almenning varðar virtust allir rosalega yndælir og flestir sem kunnu ensku svo það var ekkert mál að bjarga sér.
Reynar var ég ekkert rosalega ánægð með Heimsferðir í þessari ferð, en við flugum á vegum þeirra reyndar með Tékknesku flugfélagi. Ferðin byrjaði þannig að við áttum að fara í loftið kl 9:00 á fimmtudagsmorgunn en það varð seinkun á vélinni svo við fórum ekki í loftið fyrr en rúmlega 12:00 á hádegi. Flugferðin var svo sem alveg ágæt og beið rúta eftir okkur sem fór með okkur á Grand hótel Union en þar gisti liðið. Það var alveg hið fínasta hótel nema það að rúmin voru frekar hörð, en það er staðsett alveg niður í bæ eða á besta stað. Þegar átti svo að halda heim á leið þá átti upphaflega að fara í loftið kl 19:00 svo haldið var af stað út á völl um 17:00 en það er ekki nema c.a 30 mín keyrsla frá miðbæ Ljubljana og á flugvöllinn. Við reyndar vissum að það yrði einhver seinkun c.a 2 klst en búið var að panta rútuna út á völl svo þar tók við bið þar sem flugstöðin er ekki stærri en rétt duty free búðin er í Leifstöð og eftir að búið var að tékkja sig inn var ekki einu sinni hægt að fá sér að borða þarna því það var ekkert þarna nema smá duty free búð sem var eins og snyrtivöruverslunin í duty free í leifstöð að stærð og lítið til að vöru. Seinkunin lengdist svo og lengdist og við komumst ekki í loftið fyrr en kl að verða 21:30 og við tók 4 klst flug heim.
En þegar heim var komið tók próflestur við og fór ég í 5 próf sem ég kláraði svo 16 desember. Þau gengu svona upp og ofan, aðallega illa enda var svolítið mál að púsla þessu öllu saman. Jói sást ekki á meðan á þessum prófum stóð, var farin í vinnuna héðan fyrir kl 8 á morgnanna og ekki komin heim fyrr en að ganga 10 flest kvöld. Svo ég gat bara lært á morgnanna og búið. Þetta er líka búin að vera frekar strembin önn að mínu mati og ég ekkert getað sinnt henni eins og skildi enda var mikið af þessu efni sem var til próf frumlesið daginn fyrir próf. Þegar svoleiðis er upp á teningnum er kannski ekki hægt að búast við miklu. Svo var maður í hálfgerðu stressi að fara með Arnór og svo Hönnu í gæslu dagana sem prófin voru og vera búin að því fyrir kl 9 þá daga sem voru próf því þau byrjuðu öll kl 9 og leikskólinn hjá hönnu byrjar ekki fyrr en kl 8:30 eða hennar tími byrjar þá. En það er engu við að sakast nema út í sjálfan mann að hafa ekki staðið sig betur en ég veit að ég náði öllu nema á eftir að fá að vita út úr einu sem ég vega salt á fall / staðið svo maður vonar bara það besta. Jólagjöfin mín í ár frá skólanum eru sjálfsagt einkunnir frá 5 - 6.5 glæilegur árangur það :(
En svo eru það bara jólin framundan. Ætla að reyna að hitta Sigrúnu á morgun, mánudag eða þriðjudag og kíkja á villuna hennar sem og bumbubúan svona áður en hann/hún kemur í heimin en það styttist óðum í það.
Á aðfangadag verða svo mamma og pabbi hérna og hlakka ég mikið til. Eldað verða rjúpur að sjálfsögðu og ég get ekki beðið eftir að borða þær. Hef ekki fengið þær í 3 ár svo það er komin tími til.
En ætli best er að fara að sinna börnunum, ég lofa að skrifa aftur fyrir jól
Jólakveðja Auður Arna
Posted at 16:22 by audurarna
Permalink
Friday, November 18, 2005
Sæl öll sömul
Af okkur er svo sem ekkert nýtt að frétta. Allt gengur bara sinn vanagang, vaknað, börnunum hent í pössun, ég að læra, ná í börnin og reynt að finna sér eitthvað að gera þangað til að kvöldmat kemur. Þar sem maður er sjaldnast með bíl er bara reynt að finna sér eitthvað að dunda heima. Veðrið hefur ekki verið upp á sitt besta til að fara eitthvað út eða labba til Mundu ömmu og Harðar afa svo við höfum mikið bara hangið heima.
Jói er að drukkna í vinnu svo við sjáum hann svo sem ekki mikið. Hann er líka alltaf á bílnum núna því hann er alltaf eitthvað að þvælast í vinnunni sem krefst þess að hann er á bílnum. Svo ég varð bara að díla við minn elskulega föður og fá lánað hjá honum bílinn því ég og Ásdís urðum að klára verkefni í skólanum í vikunni. Stelpan hennar var lasinn svo ég varð að fara til hennar. Þannig að ég fór og tók báða stólana úr okkar bíl, tók strætó héðan frá mér bæði miðvikudag og fimmtudag upp í Hamraborg og labbaði þaðan í vinnunna til pabba og tók af honum lyklavöldinn. Brunaði svo heim til að ná í stólana og setti þá í bíllinn og hentist af stað upp í moso. Við vorum þrusu duglegar og náðum að klára þessa rannsóknaráætlun okkar nánast því á fimmtudaginn.
En þar sem mínir yndislegur foreldrar voru nú svo góðir að lána mér bílinn náðum við auðvitað í múttu í vinnuna, barnanna til mikillar gleði, svo hún þyrfti nú ekki að þvælast heim í strætó sem virðist vera endalaust vesen. Við búðuðumst svo auðvitað aðeins þangað til við náðum svo í pabba um 6 leytið. Þetta auðvitað stytti daginn hjá okkur til muna og gladdi okkur mikið að hitta afa og ömmu svona tvo daga í röð. Það var svoleiðis skrígt og hlegið leið og amma birtist út úr Vís húsinu því þetta var virkilega spennandi að ná svona í ömmu í vinnuna. Ég tala nú ekki um þegar náð var í afa. Það fannst Hönnu mjög gaman. TIlkynnti það öllum á leikskólanum að hún væri að fara að ná í Anton afa sinn í vinnuna. Svo þið getið rétt ímyndað ykkur hvað okkur þykir æðislegt að vera búin að fá þau í bæinn. Nú vantar bara að hafa Önnu Rósu og co. en þá væri þetta perfekt. En ekki er hægt að fá allt saman svo það bíður betri tíma c.a 2-3 ár.
Við mútta fórum í gær og keyptum latarbæjar - regngalla handa Hildi Líf. Hanna mátaði hann til að vita hvaða stærð maður ætti nú að taka en núna kemur ekki til greina annað en að hún eigi gallann. Hún ætlar sko ekki að láta hann af hendi. Þannið að honum verður stungið í póst við tækifæri þar sem hún er ekki með svo ekki verði allt vitlaust á heimilinu. Henni finnst þessi galli æði og er í þessu að fá að máta hann. Ég tók auðvitað mynd að henni til að senda Hildi til að sína henni hvað gallinn sem hún fengið væri flottur. Geri það í kvöld ef netið hjá Önnu Rósu virkar. Búið að vera einhver leiðindi á því, allavegana í gær.
Svo fór ég á smá fund í Smáraskóla í hádeginu í dag. Við ætlum sem sagt að fara þangað í æfingarkennslu eftir áramót og líst okkur rosalega vel á það allt saman. Ég læt ykkur vita af því betur þegar nær dregur hvernig það er allt saman.
En við börnin ætluðum víst að baka eins skúffuköku svona til að hafa eitthvað að gera og nú er Hanna að heimta að fara að byrja á herleg heitunum svo ætli sé ekki best að koma sér í skítagallan þar sem eldhúsið verður eins og sprengja eftir þann bakstur ef ég þekki börnin rétt. Hafið það gott á meðan og þeim sem leiðist, verður skúffukakan tilbúin eftir c.a klukkustund svo endilega komið í nýbaka köku og ískalda mjólk.
Se ya
Posted at 15:12 by audurarna
Permalink
Sunday, November 13, 2005
Þetta er alveg ótrúlegt hvað er mikil traffík í bænum. Bæði þessa helgi og um síðustu helgi var alveg sama hvert maður leit, það voru öll bílastæði full, fólk út um allt svo ekki sé talað um umferðina. Nú skín í gegn hversu mikill sveitalubbuinn sem maður sjálfsagt, en ég á ekki til orð yfir þessu. Ég rétt skrapp kl hálf 12 á föstudaginn niður í smáralind, bara inn og út má segja og þar sem smáralindin opnar ekki fyrr en kl 11 reiknaði ég nú alveg með því að það væri nú ekki brjáluð traffic en nei nei það var alveg helling að fólki komið í búðirnar. Svo var ég að koma heim úr smáralindinni því mér var tilkynnt það á föstudaginn að Hanna Kristrún hafi ekki getað verið úti að leika sér því hún var að drepast í tánum í stígvélunum því þau voru orðin allt of lítil. Þannig að ég og Hanna húrruðum okkur niðureftir og ég ákvað að vera snemma í því þar sem smáralind opnar ekki fyrr en kl 12 en nei nei hálf eitt gat ég ekki fundið bílastæði.
Það er meira en mánuður til jóla og varla farið að skreyta þegar allt er orðið kjaftfullt í búðum, meira að segja nettó hérna í salahverfinu. En að sama skapi kannski gott að fólk er snemma í þessu svo stressið yfirtaki það ekki svona rétt fyrir jól heldur getur fólk þá meira notið þess að jólin eru að koma. Kannski er ég líka svona ofsalega róleg því ég ætla að reyna að versla allar mína jólagjafir út í sloveníu. Ef það ekki tekst verð ég sjálfast í stresskasti eftir 16 des því ég get ekki klárað jólainnkaupinn fyrr því ég verð á kaf í prófum þangað til.
En þrátt fyrir að ég skuli ætla að versla jólagjafirnar úti er ég ennþá algjörlega hugmyndasnauð í sambandi við þær. Endilega komið með hugmyndir hvað maður gefur ömmu, mömmu og pabba, tengdó,systkinum Jóa, manns eigin börnum, börnum vinkvennanna.....
Annars kíktum við börnin til Evu frænku og Magnúsar Mána og var rosalega gaman að koma til þeirra. Hafði ekki séð Magnús Mána svo það var komin tími til. Við tættum allt og rusluðum til hjá henni og fengum meira að segja að borða og skildum svo húsið eftir í rúst :( Börnin alltaf jafn snyrtileg þar sem þau koma hehe enda Magnús Máni alveg búin eftir að stuðboltarnir fóru og sofnaðu um leið og við skelltum hurðinni held ég svei mér þá. Ætli Eva greyið hafi ekki farið og nýtt tímann meðan Magnús svaf til að taka til :/
Jæja gutti vaknaður svo best að kveðja í bili, stutt færsla aldrei þessu vant
Posted at 15:19 by audurarna
Permalink
Wednesday, November 09, 2005
Er glöð en sakna stóru syss
Ég er svo glöð þessa dagana. Loksins, loksins er Arnór Dagur búin að taka það í sátt að fara til dagmömmunar. Ekkert lengur neinn grátur milli gnístandi tanna eða svoleiðis hendurnar vafnar um hálsinn á manni að það lá við að maður dytti niður af súrefnisskorti. Nú fer hann bara til hennar, segir reyndar ekki bless ennþá heldur horfið bara á mann en þetta er mun betra en þegar maður þurfti svoleiðis að rífa hann af hálsinum á manni, grenjandi og lá við öskrandi. Svo er hann orðin svo góður hjá henni. Snattast bara um og leikur sér. Þvílík bilting á einu barni.
Hanna Kristrún er alltaf jafn hress á leikskólanum, voðalega gaman alltaf og hlakkar mikið til á morgnanna að hitta Bergdísi og Birgittu Líf. Það er náttúrulega bara frábært.
Annars er nóg að gera í skólanum. Við erum að fara á full í rannsóknaráætlunina okkar við Ásdís, en erum að velta fyrir okkur einhverri góðri rannsóknarspurningu. Við ætlum að gera okkar rannsóknaráætlun um tvítyngd börn eða nýbúa. Ef við erum með góða rannsóknarspurningu þá endilega látið mig vita. Við vorum að hugsa eitthvað út frá kennaranum, eins og hvort það væri nægur aðbúnaður fyrir kennara sem tækju á móti börnum sem væru tvítyngd eða nýbúar. Eða hvort það væri næg fræðsla fyrir kennrara, þá hvert þeir gætu leitað, efni fyrir þá til að kenna og auðvelda þeim samskiptin eða eitthvað slíkt. Endilega látið mig vita
Annars er manni farið að hlakka ískíggilega til Ljubljana ferðarinnar. Er að skoða slóvneskar síður og er þetta moll þarna með yfir 300 búðum ískiggilega stórt. Þetta eru allt risastórar búðir og þarna fæst allt, þá meina ég allt. Annars kvíð ég lika fyrir að fara. Ég hef t.d aldrei farið frá börnunum í svona langan tíma og það verður skrítið. Ég veit að við höfum bæði gott af þessum aðskilnaði en ég held samt að ég eigi eftir að finnast það erfitt, einkum á fimmtudeginum þegar við förum. Maður getur nú eflaust gleymt sér þarna úti en þau verða í góðum höndum svo maður er rólegri fyrir vikið. Maður er náttúrulega alveg ótrúlegur, maður hljómar eins og maður sé móðursjúkur hérna.
Annars er Þórey Þóris að koma í bæinn um helgina. Við stöllur þ.e ég, hún, Guðlaug, Ragga og vonandi Sigrún ætlum að hittast og gera okkur glaðan dag, eflaust verður einhver bjór með í för. Það er komin tími til að hita aðeins upp fyrir slóveníu þar sem bjórinn, að mér skilst, kostar litlar 12 kr. Þannig að á laugardaginn verður miðbærinn málaður rauður.
Anna Rósa syss er alltaf úti og ég sakna hennar sárt. Það verður skrítið að hafa þau ekki um jólinn hérna. Það verður sjálfsagt bein útsending á skype og þau geti heyrt kirkjuklukkurnar hringja kl 6 á aðfangadag. Ef ég myndi ekki heyra kirkjuklukkurnar hringja inn jólinn á aðfangadag væru ekki jól hjá mér.
En jæja best að fara að læra. Nóg er nú að verkefnunum
Se ya
Posted at 09:11 by audurarna
Permalink
Friday, November 04, 2005
Þá er komin enn einn föstudagurinn. Ég verð farin að ferma áður en ég veit af ef vikurnar halda áfram að líða svon hratt.
Ég held að ég sé loksins búin að læra það að vera ekki að læra meðan börnin eru vakandi. Var að finna verkefni í upplýsingatækni þ.e búa til gagnvirkt efni og var búin að búa til kennsluefni um Word. ÉG var eitthvað svo upptekin að því að vinna þetta að ég gleymdi að save þegar Arnór kom til mín og var eitthvað svo óvenju rólegur í kringum mig meðan ég sat við tölvuna. Þá var það auðvitað út af því að takkanir á tölvunnu voru svo spennandi og hann auðvitað ýtti á slökkvi/kveiki takkann þannig að hann slökkti á helv... tölvunni. Ég náttúrulega ekki búin að save svo þið getið rétt ímyndað ykkur ánægjuna á svipnum á mér.
Ef þið viljið sjá hvað ég var að aðhafast er þetta slóðin þangað:
http://nemendur.khi.is/auduanto/Uppl.%20og%20skólastarf.htm
þið farið annað hvort í skjakennsla um word eða krossapróf. Ég var sem sagt að vinna að þessu þegar minn yndislegi sonur slökkti á tölvunni.
Annars er allt þokkalegt að frétta héðan úr Rjúpnasölunum. Ég var að borga ferðina mína til Ljubljana svo nú er ekki aftur snúið og við hjónakornin verðum mætt upp í flugvél fimmtudaginn 24 nóv kl 9. Munda ætlar að ná í börnin fyrir okkur í gæslu á fimmtudaginn og hafa þau fram á föstudag og koma þeim í gæslu en svo ætlar mamma og pabbi að taka þau og hafa þau fram á sunnudag eða þangað til við komum.
Ég fór með Arnór til Þorbjargar sem er höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferðari ef svo má segja og það er bara sem betur fer ekkert að honum. Hann er bara pirraður af því að hann er að taka tennur og það allar í einu þ.e alla jaxla og ögntennur bæði í efri og neðri. Hún sá samt strax að hann væri ansi háður mér svo hún lét hann fá eitthvað til að auka sjálfstraustið hjá honum og þá ætti hann að fara að verða ánægðari með sjálfan sig og ekki alltaf svona utan í mér. Hún sagði við mig að hann ætti einnig eftir að verða mjög ákveðin ungur maður (sem kom mér ekkert á óvart) en hann ætti eftir að verða ljúfur og góður. Svo við fórum bara mjög sátt frá henni
Ég veit ekki hvað ég á að segja ykkur meir. Það er alveg nóg að gera í skólanum, Var að klára viðtalsverkefni sem ég þarf einmitt að fara að drífa mig með niður í kennó og skila og svo er full af öðrum verkefnum sem maður þarf að fara að byrja á svo maður komist nú til Sloveníu.
Það var líka annað sem ég ætlaði að segja ykkur og fór nú að blogga til þess en nú man ég ekkert hvað það var. Ég segi ykkur það bara næst eða þá að ég blogga aftur í kvöld
Bíð ykkur annars góðrar helgar og sjáumst hress þegar við sjáumst
Kveðja Auður
Posted at 16:12 by audurarna
Permalink
Saturday, October 29, 2005
Er ennþá að róa mig niður eftir viðburði staðalotunnar.
Búin að vera í skólanum nánast alla vikuna á fyrirlestrum og í bekkjartímum. Svo áttum við reyndar einnig að halda fyrirlestur og vera með kennslustund. Kennslustundin gekk rosalega vel. Tók fyrir sólkerfið og fræddi samnemendur mína um myndun þess og pláneturnar. En svo áttum við að halda fyrirlestur. Við áttum að velja okkur höfund og valdi ég mér snillingin Þórarinn Eldjárn. Svo þegar kom að fyrirlestrinum var eins og eitthvað hefði komið yfir mig. Hjartað byrjaði að hamast svo í brjóstinu á mér að ég er viss um að það hafi sést utan á peysunni. Ég varð eldrauð á öxlunum og í framan og mundi ekkert af þeim texta sem ég ætlaði að fara með sem ég kunni utanbókar 2 mín áður. Ég þurfti nánast að lesa allt af blaðinu og ég fann að það var barasta að líða yfir mig. Ég náði þó að þrauka þessar mínútur af með herkjum með því að tala eins og ég ætti lífið að leysa. Þessi fyrirlestur er 25% af lokaeinkunn og verður fróðlegt að sjá hver hún verður :( Vona að kennslustundin nái að hífa hana aðeins upp. Ég skil ekkert hvað kom fyrir mig því ég hef alveg talað fyrir framan fólk áður og þetta hefur aldrei komið fyrir. Þetta var rosalega skrítið og ég fann nánast fyrir hverjum þræði í hjartanu kílast út í brjóstkassann.
Annars er svo sem ekki mikið að frétta. Arnór er allur að koma til og búin að vera fínn hjá dagmömmunni bróðurpartinn af vikunni. Borðar eins og hestur, þá sérstaklega hafragrautinn á morgnanna og er farin að blása út aftur þar sem hann var búin að missa nánst alla bumbu og flestar fellingar eftir veikindinn. Kroppurinn verður fljótur að ná því upp með þessu áframhaldandi áti.
Hanna Kristrún er alltaf jafn kát með leikskólann. Kemur syngjandi heim nánast með nýtt lag á hverjum degi og þær eru rosalega ánægðar með hana á nýju deildinni. Maður þarf eiginlega að fara að redda sér söngbók með þessum lögum svo maður geti sungið með henni því ég kann ekkert af þessum lögum sem hún er að syngja. Svo er hún með Latarbæjaræði. Fórum einmitt á skemmtunina á Reykjavíkurflugvöll síðastliðið laugardag. Henni fannst það æði að sjá Sollu stirðu og íþróttaálfinn hoppa og skoppa þarna. Það var reyndar alveg ofsalega troðið og ég var alveg búin í öxlunum á að hafa hana á háhest því það var eina leiðin til að þau sæju eitthvað greyin að hafa þau á háhest. Ég hef verið að taka upp latabæ á föstudögum og ég held að þessi spóla verði orðið slitin áður en langt um líður því hún er sjúk í að horfa.
Ég er svo að vona að leikskólamál fari að lagast. Hékk upp tilkynning í gær þegar ég kom og náði í hana að það væri von á breytingum í þarnæstu viku, þannig að næsta vika verður áfram með lokunum deilda. Lokuninn hentar mér reyndar afskaplega illa þó svo ég geti ekki kvartað mikið því ég er að fara með Arnór í höfuðbeina - og spjaldhryggsmeðferð á miðvikudaginn og þá er akkúrat deildinni hennar Hönnu lokað. Hún átti að vera lokuð á fimmtudaginn en því var breytt svo nú er ég í svolitlum vandræðum því ég vil alls ekki missa af þessum tíma. Spurning um að tala við Petru frænku og ath hvernig hún er að vinna þennan dag. Kannski verður pabbi heldur ekki að vinna svo þá getur hann kannski reddað mér. Það kemur betur í ljós
Annars fer að líða að Slóveníu ferð. Hlakka mikið til að fara og versla. Hef heyrt að það sé svo ódýrt að versla þarna úti og ég hef nú kannað að bæði Zara og HM eru þarna. Ef einhverjir lesa þetta blogg og hafa farið til Ljubljana eða vita af einhverjum sem hafa farið þangað endilega sendið mér póst og segið mér hvað maður má ekki missa af og hvar sé nú best að versla. :)
E-MAIL audurarna@hotmail.com
Í gærkveldi var svo bara rólegheitarkvöld. Ég og Arnór vorum bara tvö heima í kotinu og það var óvenju hljóðlegt og rólegt :) Ég leigið mér bara mynd og lá eins og klessa upp í sófa með nammi eins og ég hafi átt von á 10 manns. Hanna Kristrún fékk nefnilega að sofa hjá Guðrún ömmu og Antoni afa og það var nú ekkert smá sport. Hún var búin að tilkynna það öllum leikskólanum held ég barasta að hún væri nú að fara til þeirra og beið nánast við gluggann til að ath hvort Anton afi færi ekki að koma og ná í sig eftir að hún var búin á leikskólanum. Þegar sú stund rann svo loksins upp hafði hún varla tíma til að kveðja mömmu sína því hún var að drífa sig í afabíl og bruna með þeim heim. Þau eru frábær þessar elskur.
En sennilega eru flestir orðnir þreyttir á þessu blaðri í mér svo ég læt staðar numi hér. Enda ætti maður líka að fara að opna skólabækur og fara að gera eitthvað að viti.
Bið að heilsa í bili
Auður
Posted at 10:36 by audurarna
Permalink
Monday, October 17, 2005
Ég er að hugsa um að hætta í skólanum. Ég er heavy mikið á eftir þar sem ég hef ekki lært í meira en viku, ekki einu sinni getað kíkt í bók og ég er því með samvisku dauðans gagnvart bekkjarfélögum þó sérstaklega í einu faginu. Þær hafa greyin þurft að sjá alfarið einar um að kjafta þar og hef ekki einu sinni komið þar inn til að segja hæ.
Það er ekki nóg með að skólinn sé eins og hann er þá var ég að komast að því að deildinni hennar Hönnu er lokað á mánudag eftir viku, akkúrat þegar ég á að vera í staðalotu í skólanum. Ég hef ekki hugmynd hvernig ég á að redda því, því ég verð að mæta í þessa staðalotu, því í henni eru bara próf og verkefni sem þarf að taka til að fá rétt til þátttöku í lokaprófinu. Þetta er náttúrulega ótrúlegt að hafa barnið sitt á leikskóla en þurfa svo að vera með það heima einu sinni í viku og ná í barnið snemma einnig í sömu viku. Ég veit ekki hvernig fólk fer að þar sem báðir foreldrar eru útivinnandi, ég meina þetta er nú bara einn dagur hjá mér sem ég er að vandræðast með því annars ég er bara heima en get þá á móti nátturulega ekki lært.
Arnór er allur að koma til sem betur fer. Þetta er nú búið að vera meira ástandið. Hann svaf næstum því í alla nótt í fyrsta skiptið frá því á sunnudaginn fyrir viku síðan. En hann verður samt sem áður heima hjá mér þar sem dagmamman þurfti skyndilega að fara frá fram að miðvikudag vegna aðstæðna sem upp kom í fjölskyldunni.
En ég ætla að reyna að læra eitthvað ef ske kynni að maður haldi svo bara áfram í þessum skóla. Bið að heilsa mér í bili þar sem hvort eð er engin virðist lesa þetta blogg, allavega kommentar enginn á það
Posted at 10:56 by audurarna
Permalink
Saturday, October 15, 2005
Gagnvirkt efni í námi og kennslu
Gagnvirkt efni í námi og kennslu finnst mér persónulega mjög sniðugt. Skólar í dag eru allflestir búnir að koma sér upp góðum tækjakosti. Ekki er nóg að skólar hafa komið sér upp tölvuveri heldur búa þeir margir yfir því að eiga allt að bekkjarsetti af fartölvum sem kennarar geta notaði í tímum þegar ekki gefst færi á að vinna í tölvustofunni. Þetta gerir það að verkum að kennarinn getur notfært sér þessa frábæru tækni meira sem gagnvirkt efni hefur upp á að bjóða.
Mér finnst t.a.m mjög sniðugt að gera krossapróf eða stutt próf fyrir nemendur svo þeir sjái hvar þeir eru staddir í náminu því hægt er að hafa það þannig að nemendur fái svörin strax. Ef nemendur standa sig ekki vel á prófinu geta þeir lesið sér betur til og tekið það jafnvel aftur og séð hvort þeir hafa ekki bætt sig í viðkomandi grein. Þetta léttir líka helling á kennaranum að vera ekki alltaf að fara yfir fullt af prófum sem hann leggur fyrir og nemendur óþreyjufullir að fá að vita hvernig þeir hafa staðið sig.
Einnig geta slík próf verið t.d inn á innravef skólans þannig að nemendur geta tekið slík próf að vild ef menn vilja sjá hvar þeir eru staddir og á hvað þeir þurfa að leggja meiri áherslu á.
Margmiðlum getur einnig hjálpað helling til að kenna nemendum á ákveðin hlut sem tengist tölvunum. Menn hafa misjafnlega mikinn grunn hvað varðar tölvur og þessi frumskógur sem tölvuheimurinn er nú (að mínu mati) liggur betur fyrir sumum nemendum en öðrum. Þá finnst mér sniðugt að búa til t.d í Captivate kennsluefni fyrir wordkennslu þannig að hver og einn nemandi getur lært þetta á sínum hraða. Þeir sem hafa áður unnið mikið í word kunna væntanlega að breyta leturstærðum og stækka og minnka stafi meðan aðrir vita varla hvað verið er að tala um. Þá geta þeir nemendur sem lengra eru komir einbeitt sér að læra eitthvað annað sem þeir ekki kunna fyrir í stað þess að hanga í tímunum þegar verið er að fara í hluti sem þeir kunna og láta sér leiðast. Mín reynsla er nefnilega sú að þeim sem leiðist í tímum og finnst efnið ekki áhugavert eða kunna það fyrir enda bara með því að trufla kennsluna.
En tölvuheimurinn liggur einnig misjafnlega vel fyrir kennurunum eins og nemendum og misjafnt hvað kennarar hafa verið duglegir að nota tölvur í kennslu sinni. Því er kannski ekki hægt að ætlast til að allir leggi það á sig að búa til gagnvirk efni fyrir nemendur. Mér þætti þá mjög sniðugt að teymin (ef slik eru í skólum) tæku sig saman t.d þeir sem kenna sömu bekkina í skólum eða í minni skólum gætu þá stigin tekið sig saman og unnið þetta í samvinnu. Meðan einn byggi kannski til gagnvirkt efni sem góður væri í því fyrir hópana/bekkinn mynd einhver annar búa til efni sem ekki væri gagnvirkt og þannid myndu kennarar/teymin hjálpast að við að gera kennsluna litríkari, fjölbreytnari og skemmtilegri að mínu mati.
Kveðja Auður
Posted at 12:57 by audurarna
Permalink
Friday, October 14, 2005
Jæja þá er komin enn einn föstudagurinn.
Það var hringt af deildinni hennar Hönnu Kristrúnar í gær og mér sagt að daman væri komin með 39 stiga hita. Ég veit ekki hvar þessi lasleiki á familiunni endar. Þegar hún kom heim hlammaði hún sér bara beint í sófann og var það allan daginn dottandi, hrjótandi og horfandi á Dvd. Þrátt fyrir að hún hafi verið hálf rænulaus í sófanum allan gærdag var hún samt sofnuð um 8 í gærkvöldi. Greinilega mjög slöpp. Hún er eitthvað aðeins hressari í dag svo ég ætla að vona að þetta verði ekki neitt að ráði.
Arnór Dagur er ekki ennþá búin að ná sér. Hann er rosalega pirraður og svaf illa í nótt og við vorum komin á fætur fyrir kl 7 í morgunn. Hann borðaði smá hafragraut sem mér fannst mjög gott því hann er ekkert allt of góður í maganum að vera að taka þessi sýklalyf en borða ekkert með þeim. Ég vona svo innilega hans vegna að hann fari nú að hressast. Það er svo erfitt að vera svona lengi lasinn.
Hvað skólann varðar er ég á bari þess að gefast bara upp. Ég er eftirá með allt finnst mér og er ekki að sjá mér fært að ná því öllu upp. Mig vantar rosalega mikið pepp núna til að stíga upp úr þessari hugsun. Sjáum til hvað gerist
En ég þarf engu að síður að fara að demba mér í þetta verkefni í upplýsingatækni. Mér finnst þetta alveg rosalega sniðugur áfangi og ég hef lært alveg helling. Mig óraði ekki fyrir því hvað það er margt sniðugt hægt að gera í upplýsingatækni hvað varðar kennslu. Fyrir mitt leiti finnst mér kennslan verða á einhvern hátt áhugaverðari þegar maður býr til verkefni fyrir nemendur að glíma við á tölvutæku formi. Ef ég væri nemandi í dag, myndi ég sennilega frekar nenna að gera verkefni ef þau væru sett skemmtilegri upp í tölvum en að vera alltaf að fá einhver blöð og vera alltaf að lesa í bókum og vinna verkefni upp úr þeim. Þetta brytur kennsluna svo mikið upp að blanda þessu svona saman.
Ég tel að þetta sé þróunin í dag, þ.e þessi tölvunotkun við kennsluna. Þeir eiga kannski erfiðara með þetta þeir kennarar sem hafa verið að kenna lengi og eru alls kostar ekki inn í allri þessari tækniþróun. En auðvitað geta allir lært þetta og finnst mér þá lika einnig um að gera að teymin innan skólans ef slíkt er hjálpist að og þeir sem góðir eru í tölvum geri verkefni fyrir viðkomandi stig sem allir gætu nýtt sér meðan aðrir einbeita sér að öðru sem þeir eru góðir í.
En jæja best að vera ekki að eyða öllum tímanum í að blogga meðan drengurinn sefur.
kveð því í bili
Posted at 12:48 by audurarna
Permalink
Thursday, October 13, 2005
Sælt veri fólkið
Dagarnir þessa vikuna hafa verið vægast sagt erfiðir. Arnór Dagur er búin að vera með bullandi hálsbolgu og hátt í 40 stiga hita síðan á sunnudagskvöld. Þetta er búið að fara mikið í skapið á mínum og hefur hann hvorki sofið né nærst svo hægt sé að tala um síðan á sunnudagskvöld. Hann hefur reynar aðeins verið að drekka en það er það eina. Ég hef bara verið að labba með hann um gólf, grátandi á öxlinni á mér, síðan á mánudaginn. Hef sjálf varla getað borðað þar sem ég má hvorki setjast niður með hann né leggja hann frá mér án þess að hann að brjálaðist. Hitinn lækkaði þó örlítið á þriðjudagsmorguninn hjá honum. Ég fór samt með hann til doksa síðar um daginn því hann var svo pirraður og grét bara og grét. Út úr því kom að þessi elska er með svo mikla hálsbolgu og sýkingu aftarlega í munninum að læknirinn sá engan annan kost en að setja hann á enn ein sýklalyfin. Einnig keypti ég fljótandi panodil handa honum þar sem hann virðist ekki þola stílana og leið honum strax miklu betur seinnipart þriðjudagins. Hann rauk samt sem áður upp í hita aftur og mældi ég hann með 39.1. Nóttin var frekar erfið fyrir hann þó svo ég hafi getað lagt hann aðeins frá mér eftir að hann var sofnaður í svona hálftíma og hálftíma en hann rauk alltaf upp aftur og þá alveg brjálaður.
Dagurinn í dag byrjaði svo ekki vel. Við vorum komin á fætur hérna um 7 eftir mjög svo slitróttan svefn og var hann vakandi hérna til að verða 10, óttalega aumur og lítill. Hann náði að sofna í fanginu á mér í svona 10 mín eða þangað til ég reyndi að leggja hann niður. Fór það því þannig að hann vakti næstu tímanna ótrúlega pirraður og fúll á móti vegna þreytu að hann nánast grét, þó með hléum til að verða tvö í dag. Ég átti bara að labba með hann og mátti ekki hugsa mér það að setjast niður, nema þó í tvö skipti sem hann náði að gleyma sér yfir Ice age á dvd. Þannig að þrammað var hér um gólf frá kl 10 - 14 en þá gafst minn loksins upp, alveg úrvinda úr þreytu og náði að sofa í klst. Ef ég verð ekki orðin sterabolti eftir að burðast með 12 kg um alla íbúð veit ég ekki hvað.
Eftir þennan klst svefn leið honum strax mun betur og virtist sem að sýklalyfin væru eitthvað farin að virka því hann exjuali fór að leika sér inn í herbergi ef ég sat hjá honum.
Hann borðaði þó lítið en ég náði þó að plata ofan í hann einni jógúrt fyrir syklalyfjatökuna og svo er hann sofnaður þessi elska þó svo ég sé búin að fara inn til hans í 5 skipti núna á síðustu 2 klst.
Það er annars allt fínt að frétta af Hönnu Kristrúnu. Hún unir sér vel á nýju deildinni sinní í leikskólanum og finnst æðislegt að fara á morgnanna í leikskóla og fara að hitta Bergdísi og Birgittu Líf. Hún kom reyndar heim af leikskólanum í gær með hálsbolgu og ég heyrði á henni í dag að hún hafi bara versnað ef eitthvað er því hún var orðin svo rám. Ég krosslegg bara fingur að hún leggist ekki líka því þá held ég að ég geti nú alveg kvatt þennan skóla.
En núna sit ég hérna við tölvuna eftir að liðið er loksins sofnað og er að velta því fyrir mér hvað ég eigi að gera í sambandi við margmiðlunarefni sem við eigum að setja saman.
Mér var að láta mér detta í hug að taka fyrir wordkennslu. Þá er ég að hugsa um að taka þetta helsta t.d breyta leturstærð, breyta litu á stöfum. setja inn myndir og gera svona helstu fídusana. Ég ætlaði mér þá að byggja þetta upp svipað og ég hef haft við höndina þegar ég var sjálf að þreifa mig áfram við gerð heima síðunnar minnar í Frontpage, sem var alveg nauðsynlegt fyrir mína parta. Þá meina ég að fylgja nemandanum eftir skref fyrir skref hvernig á að vinna í word.
En nú held ég að komin sé tími á mig að fara að sofa áður en ég sofna hérna fyrir framan tölvuna enda ekkert viturlegt sem kemur frá mér núna. Eins gott líka að nýta timann meðan börnin sofa að sofa sjálfur
Blogga í næstu færslu um nothæfi margmiðlunar í kennslu
Kveð að sinni
Posted at 00:25 by audurarna
Permalink